Ert´orðin drukkin Þórgunnur!!? 7 9 13.... kom inn!
Myndirnar mínar
Nýja síðan mín
29.04.2006 14:45:21 / mumin

Daddara...

Nýja síðan mín hér: www.elvah.bloggar.is :haha:

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.04.2006 22:50:07 / mumin

Ný síða....

Jæja, nú er ég komin með nýja síðu og verð að blogga þar og gera eitthvað skemmtilegt... þarf bara aðeins að læra á hana fyrst;) Linkurinn á hana er hér neðst til vinstri. Annars ætla ég að taka mér smá frí frá bloggi næstu dagana allavega, þar sem ég er á fullu í verkefnavinnu og nóg að gera. En þangað til næst.... hafið þið bara gott!


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 21:02:52 / mumin

Nýjar myndir!:)

Var að setja inn myndir frá Købenferðinni minni og Galakvöldinu hjá Áladívunum:D Það koma líka myndir frá Studieturnum og London, tölvan mín er bara svo svakalega hæg þessa dagana að það gengur frekar hægt að setja inn myndir. En endilega kíkið á nýju myndirnar!!:haha: OG MUNIÐ AÐ KVITTA FYRIR KOMUNA!!!!

» 4 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 15:21:42 / mumin

Jei!

Var að kaupa mér miða á Anastacia tónleikana, sem verða í Randers 2.júní!!!:haha: Við Unnur ætlum að skella okkur.. ooo, það verður geggjað!:haha: En verið nú dugleg að skrifa í commentin eða í gestabókina.. það er svo gaman að sjá hverjir kíkja hérna við!;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 21:34:02 / mumin

Enn eitt ammilið!:)

Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag.... Hún litla didda er 18 ára í dag!:haha: Til hamingju með afmælið elsku Inga Sandra mín!! Vona að þú eigir eftir að njóta þess sem eftir er af afmælisdeginum;)

En helgin var bara svona líka fín hjá mér og laugardagskvöldið var náttúrulega bara æði!:haha: Fór út að borða með Áladívunum á Store Restrup Herregaard, sem er rosalega flottur Herragarður sem liggur hér rétt fyrir utan bæinn. Byrjuðum á því að fara í vínsmökkun og borðuðum svo þriggja rétta máltíð, og maturinn var geggjaður! "Skoluðum" því niður með "smá" rauðvínsdreitli og svo skelltum við okkur í Jomfru Ane Gade og djömmuðum þar fram eftir nóttu. Það er ekkert smá langt síðan ég hef skemmt mér svona vel í bænum!:haha: Við Olga Huld og Rakel þurftum nú reyndar að bíða eftir leigubíl í allavega einn og hálfan klukkutíma8| :!: Við héldum að við myndum hreinlega verða úti! En þrátt fyrir það var þetta alveg geggjað kvöld!:haha: Annars var helgin bara frekar stille og róleg:)


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.03.2006 19:08:05 / mumin

Helgin....

Hvað er málið með sumt fólk og fiskivondufýlu!!8| Við Óttar vorum á leiðinni heim úr bænum með strætó í dag og fyrir framan okkur sat stelpa sem lyktaði eiginlega bara alveg eins og frystihús.. hún vinnur kannski á svoleiðis:$ En við vorum alveg að kafna og vorum bæði orðin bílveik og vorum í alvöru að spá í að fara úr strætó einhversstaðar á leiðinni heim.. bara til að fá ferskt loft! Æ greyið stelpan...En ef þið viljið fá að vita hvað ég var að gera í bænum þá var ég í klippingu.. er ekkert smá sæt;) Annars er brjálað að gera í verkefnavinnu þessa dagana. Þangað til í gær gekk okkur ekkert allt of vel og við vissum í rauninni ekkert hvað við áttum að gera... en svo fengum við loksins "vejledning" (man ekki hvað það heitir á íslensku) hjá kennaranum okkar og þá fórum við að skilja meira og komumst loksins eitthvað á skrið:haha: Við eigum að skila í lok apríl og enn er nóg eftir að gera.. vona bara að við náum að klára:S En grúppan mín er mjög fín... alltaf stuð í verkefnavinnu;) Svo er ég að fara á Galakvöld með Áladívunum (Kvennafélaginu hér í Áló) annaðkvöld. Við ætlum að fara út að borða á svaka flottum veitingastað hér rétt fyrir utan bæinn, og vera alveg gassalega sætar og fínar:haha: Það verður örugglega mikið stuð og mikið gaman. Og síðan er ég að hugsa um að skella mér á Anastacia tónleika í Randers, 2. júní:haha: Bara gegggjað!!!!:haha: Góða helgi dúllurnar! (Og munið nú að vera dugleg að annaðhvort skrifa í gestabókina eða að commenta!;) )


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 22:24:16 / mumin

Tileinkað öllum Þórgunnunum þarna úti;)

Fann þetta á netinu og fannst þetta nú pínu skondið svo að ég ákvað að leyfa ykkur að njóta þess líka;)

Viðvörun á vínflöskum

Nú er verið að hanna viðvörunarmerki í Bandaríkjunum til að setja á áfengisflöskur. Ljósrit af því fór á flakk, svo hér má sjá sýnishorn af því sem Bandaríkjamenn ætla hugsanlega að setja á allar vínflöskur:

    1) Þú átt á hættu að dansa eins og fífl ef þú drekkur úr þessari flösku. 

    2) Neysla áfengis getur orðið þess valdandi að þú segir sömu leiðinlegu söguna aftur og aftur, þar til vini þína langar
    mest til að berja þig.

    3) Neysla áfengis getur orðið til þess að þú "þegir þlutina þvona".

    4) Neysla áfengis getur komið þeirri ranghugmynd inn hjá þér að fyrrverandi elskhugar þrái að heyra í þér klukkan
    fjögur að morgni.

    5) Neysla áfengis getur orðið þess valdandi að þú hafir ekki hugmynd um hvar nærbuxurnar þínar eru niðurkomnar.

    6) Neysla áfengis getur orðið til þess að þegar þú opnar augun morguninn eftir sjáirðu eitthvað sem vekur þér ótta
    (eitthvað, sem þú getur ómögulega munað hvað heitir).

    7) Neysla áfengis getur valdið því að þú teljir þig miklu laglegri, og gáfaðri en þú ert, sem getur leitt til óteljandi vandræða.

Gaman að þessu;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.03.2006 20:40:12 / mumin

Londonferðin...

Jæja elskurnar, þá fáið þið seinni hluta ferðalagsins.... Londonferðina okkar Óttars:haha: Dáltið langt blogg kannski, en gat bara ekki stytt það frekar;)

 

 

 

LONDON:

 

 

 

Á fimmtudeginum vaknaði ég fyrir allar aldir því rútan okkar sótti okkur kl. 07 og keyrði okkur út á Glasgow flugvöll.  Málið var að hópnum var skipt í 2 hold, og flugum við með sitthvoru flugfélaginu. Annað holdið átti flug kl. 10 um morguninn og hitt holdið ekki fyrr en kl. 13.30! Og getið bara í hvoru holdinu hún Elva var.... já alveg rétt.. seinna holdinu! Sem þýddi rúmlega sex klukkutíma bið á Glasgow flugvelli!!!:evil: (Við þurftum að fara öll saman á flugvöllinn).

 

 

 

 

 

 

 

Loksins hitti ég svo Óttar minn á Standsted flugvelli, og tókum við rútuna inní London. Við misstum okkur þegar við keyrðum inní London og ég var með með gæsahúð... þetta var alltsaman svo geggjað!:haha: Eftir smá pælingar föttuðum við hvernig lestarkerfið virkar þarna í London og gátum við fundið lestina okkar til Wembley, en þar var hótelið okkar. Við misreiknuðum okkur þó aðeins og tókum einhverja hraðlest eða eitthvað svoleiðis, sem fór framhjá stoppustöðinni okkar svo við urðum að finna lest sem fór tilbaka aftur... og við með allan farangurinn okkar ekkert smá plássfrek í lestunum og í því að “lemja” fólk með töskunum okkar... óvart að sjálfsögðu;):$ Loksins “tékkuðum” við okkur svo inná Wembley Plaza, alveg geggjuðu hóteli!!!! Þarna var líkamsræktarstöð, sundlaug og gufa (sem við höfðum reyndar ekki tíma til að nýta okkur), bar og veitingastaður og ég veit ekki hvað. Við vorum á 8. hæð og þvílíkt útsýni!:haha: Sáum akkúrat yfir á Wemblay stadion og nýja leikvanginn;) Herbergið var svaka fínt og með baðkari!!::haha: :haha: (Fékk reyndar einhver útbrot útaf vatninu, sem var fullt af klór, en lét mig hafa það;) ) Og morgunmaturinn sem við fengum.. alveg risa hlaðborð með köldum og heitum réttum.. namminamm!;)

 

 

 

 

 

 

 

En allavega..... Við vorum sko algjörir túristar í London, löbbuðum útum allt eða tókum neðanjarðarlestina (vorum sko ekkert smá klár í því:haha: ) og skoðuðum eins mikið og við gátum, en það er bara svo rosalega mikið að skoða að við komumst ekki einu sinni yfir helminginn! Við keyptum okkur svona London passa sem veitir frían aðgang og afslætti á mörgum helstu túristastöðum í borginni:D Og við skoðuðum London Tower, Tower Bridge, Hms Belfast (helsta herskip Breta í Heimsstyrjöldinni), fórum í vínsmökkun í Vinopolis (ægilega flottum veitingastað), fengum okkur öllara á írskum pub í tilefni St. Patrick´s day (sem var á föstudeginum), löbbuðum um í China Town og fengum okkur að borða þar, skoðuðum Buckingham Palace og listasýningu í The Queens Gallery, skoðuðum Tate Britain museum (sem var svo stórt að við náðum ekki að skoða allt, villtumst bara;) ), sáum Westminster Abbey, The Jewel house og Big Ben og fórum á sædýrasafnið. Ég fór svo á geggjaða listasýningu með verkum eftir Salvador Dalí, Pablo Picasso og Marc Chagall (sem er einn af mínum uppáhalds listmálurum)!:haha: Og á meðan fór Óttar í leikja- og spilasalinn við hliðina á... var orðin pínu þreyttur á að skoða öll þessi listasöfn.. þessi elska;) Við fórum svo á Oxford street og kíktum aðeins í búðir (keyptum þó ekkert mikið) og enduðum svo á að fara á Trafalgar Square í rómantíska kvöldgöngu;) Svo urðum við náttúrulega að fara pínu rúnt með enskum leigubíl.. en ekki hvað;) Við skoðuðum nú aðeins pöbbana í London, en þar sem við höfðum svona svakalega mikið að gera yfir daginn og ferðalangar orðnir fótalúnir og þreyttir á kvöldin að þá fór nú ekki mikið fyrir djamminu hjá okkur skötuhjúum... en það verður bara djammað enn meira í næstu Londonferð! Já við ætlum sko aftur til London... við vorum alveg gjörsamlega heilluð af borginni, svo mikið um að vera allsstaðar og allsstaðarfullt af fólki!:haha: Alveg geggjað!

 

 

 

 

 

 

 

En hvað er ferðalag hjá Óttari og Elvu án óvæntra atburða?;) Á laugardeginum, þegar við vorum að taka okkur til á hótelinu, heyrðum við svona svaka skrítið hljóð í herberginu... einhverja skruðninga og læti. Óttar kíkti fram á gang og þá föttuðum við að þetta var brunakerfið! Þar sem við vorum á 8. hæð var mér nú ekkert alveg sama, gat ómögulega vitað hvort þetta væri æfing eða ekki, svo ég flýtti mér í útifötin og skónna, tilbúin að hlaupa niður þessar 8 hæðir! En hann Óttar... hann var bara að taka því rólega, ætlaði fyrst að fara á klósettið og sonna í makindum sínum en ég hélt nú ekki og reif hann með mér ótannburstaðan og ógreiddan og út á plan! Þar stóðum við í dágóða stund ásamt hinum hótelgestunum, sem höfðu greinilega vaknað við þetta ógeðslega hljóð því morgunmyglan fór sko ekki framhjá neinum! Okkur var síðan hleypt inn aftur þegar kom í ljós að ekki hafði kviknað í.  Hahaha... dæmigert!;)

 

 

 

 

 

 

 

Við áttum flug heim til DK á mánudagsmorgninum kl. 07.15, en við ákváðum bara að taka síðustu rútuna á flugvöllinn á sunnudagskvöldinu... og var meiningin að finna okkur einhverja “þægilega” bekki í flugstöðinni og reyna að sofa eitthvað þar. En.... þegar við komum á Stansted rétt fyrir kl. eitt um nóttina, var flugvöllurinn fullur af sofandi fólki!! Það lá fólk út um allt! Allir bekkir voru fullir og fólk svaf á gólfinu, upp í gluggum, ofan á ofnum og ég veit ekki hvað! Við sáum nú ekki fram á að sofa mikið en reyndum þó... ég var með rúmföt í farteskinu (okkur var sagt að taka þau með í studieturinn en þurftum svo aldrei að nota þau) sem við breiddum úr, ásamt handklæðum, á gólfinu útí horni við innganginn... minnti óneytanlega mikið á fyrstu nóttina okkar hérna í Álaborg, þar sem við sváfum á teppi, einni sæng og peysunum hans Óttars;) Ég reyndi svo að sofa á gólfinu á meðan Óttar kom sér fyrir á einum ofninum... og við vorum að krókna úr kulda! Það var sumsé ekki mikið sofið aðfaranótt mánudagsins og frekar þreytt tékkuðum við okkur inn og steinsofnuðum svo þegar út í vél var komið. Við sváfum af okkur flugferðina en ránkuðum við okkur þegar flugstjórinn gerði tilraun til að lenda en varð svo að hætta við vegna þess að það var flugvél að koma úr hinni áttinni!!! Svo sagði hann að við yrðum að bíða eitthvað aðeins og að hann myndi REYNA eins og hann gæti að koma okkur heilum niðrá jörðina! Jájá góurinn... gerðu bara þitt BESTA!!! Væri nú samt alveg til í að komast í heilu lagi heim til mín... ef þér væri sama! Sofnuðum svo aftur.. það er þá betra að hrapa eða klessa á aðra flugvél og deyja sofandi;).... og vöknuðum svo þegar við vorum lent, HEIL, á flugvellinum í Árhúsum;) 

 

Við komum svo heim til Álaborgar í hádeginu á mánudeginum, þreytt en alveg rosalega ánægð með frábæra og velheppnaða ferð!!:haha:

 

 

 

 

 

 

THE END


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.03.2006 19:24:41 / mumin

Ég á afmæli í dag...

Já, mín bara orðin 22ja ára!:haha: Bauð nokkrum stelpum heim í gærkvöldi í jarðarberjamargarítur... nammnammnamm:haha: En þetta var nú bara á rólegu nótunum og voða kósí.. Afmælisdagurinn er nú búinn að vera frekar rólegur líka, erum bara búin að liggja í leti og njóta dagsins. Vorum að koma úr bíói, fórum á "Failure to launch", voða rómó mynd og ágætis afþreying;) Semsagt frekar rólegur afmælisdagur;) Svo er ég nú búin að fá nokkrar gjafir.. takk fyrir mig, og takk fyrir afmæliskveðjurnar þið öll:haha:

» 8 hafa sagt sína skoðun

24.03.2006 23:01:59 / mumin

Ég er að far´í ...... ammili...

Var að koma frá henni Svanborgu, en þar hittumst við og Olgurnar tvær og borðuðum sushi saman. Þetta var nú í fyrsta skipti sem ég smakka sushi og má segja að það sé frekar einkennilegur matur.. en alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt;) En við áttum mjög góða kvöldstund saman og mikið búnar að hlæja:haha:  Annars ætlaði ég bara að láta ykkur vita að ég á afmæli á sunnudaginn... sem er eftir tvo daga:haha: Bara að láta ykkur vita;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 23:06:21 / mumin

Komin heim..

Eruð þið tilbúin í laaaaangt ferðablogg?;)

 

 



Þá erum við komin heim eftir strembið ferðalag hingað til DK.... og má eiginlega segja að við séum alveg búin á því. En þetta var svaka skemmtileg ferð og súrrealísk oft á köflum en hérna kemur semsagt ferðasagan úr studieturnum (vona að þið séuð búin að koma ykkur vel fyrir ;) ). Ég skrifa svo ferðasöguna frá London aftur við tækifæri, bara svo að þið fáið ekki allan pakkann í einu, enda frá ýmsu að segja;)

 

 



Við lögðum af stað föstudaginn 10. mars, og var farið á fætur á mjög svo ókristilegum tíma þann dag8| Ferðalagið var frekar laaangt.. rútunni seinkaði, fluginu seinkaði os.frv.... og á tímabili héldum við að við kæmumst bara ekkert á hótelið okkar í Glasgow.  Við komumst þó að lokum á leiðarenda og vorum við komin á Euro Hostel í Glasgow um 7 leytið um kvöldið (að staðartíma). Alveg punkteruð eftir ferðalagið komum við okkur fyrir í herbergjunum okkar, og vorum við stelpurnar í bekknum mínum saman í herbergi.. alls 13 stk. með TVÖ klósett og TVÆR sturtur!!!!8|8| Þar sem að hætt var við stríðsástandi og slagsmálum um sturturnar skiptum við okkur niður í 2 hold... helmingurinn fór í sturtu á morgnanna og hinn helmingurinn á kvöldin (og þótt ótrúlegt sé þá gekk það alveg ágætlega).

Dagskráin þessa viku fór aðeins öðruvísi en áætlað var í fyrstu, og var miklu minna að gera hjá okkur en stóð til, því höfðum við þó nokkurn frítíma til að skoða okkur um og kíkja í búðir og sonna;)

En við fórum líka í skoðunarferð um Glasgow í tveggja hæða strætó.. efri hæðin var opin og sátum við þar uppi meiri hlutann af leiðinni og vorum hreinlega að krókna úr kulda, en létum okkur hafa það;) En Glasgow er mjög flott borg, kannski pínu drungaleg, en flott. Við skoðuðum líka ýmis söfn, fórum í fyrirtækjaheimsókn (sem var mjög fróðleg), fórum í dagsferð til Edinborgar og auðvitað kíktum við svo aðeins inná skosku pöbbana líka... hehemmm;) Þar uppgötvaði ég nýja besta bjórinn minn sem er ítalskur og heitir Peroni.. nammnamm:haha:

En svo ég segi nú eitthvað frá djamminu mínu að þá fórum við m.a inná einn skemmtistað sem heitir Buffalo Joe’s.. og eins og nafnið gefur til kynna er þetta kúrekastaður... í frekar “ekki saklausa” kantinum (if you know what I mean). Stelpurnar á barnum voru nú eiginlega bara hálfberar, bara í bikini og svona hálfum leðurbuxum (veit ekki hvað þetta heitir) með kúrekahatt, og strákarnir í leðurbuxum með kúrekahatt... sumsé frekar heitur staður;) Svo skiptust stelpurnar og strákarnir á að dansa uppá barborðinu... þetta var bara næstum eins og í Coyote Ugly;) Svo inná milli komu tveir “indíánar” og tóku einhverja valda stelpu með sér inní búr, helltu í hana Bailey’s og gerðu svo ýmsar “kúnstir” með hana... þetta var svona “you had to be there” eitthvað... en svona satt best að segja var þetta stundum einum of klúrt!

En nóg um það... á sunnudeginum var ætlunin að við færum nokkur til Loch Ness. Þegar við vöknuðum og litum útum gluggann þá SNJÓAÐI!!8| En Glasgowbúar fá snjókomu svona tvisvar sinnum á ári og annað skiptið þurfti einmitt að gerast á meðan við vorum þarna:$ Til að peppa hvort annað upp töluðum við um það hversu öðruvísi og skemmtilegt það yrði að sjá Loch Ness í snjó... mikil bjartsýni í gangi. Það kom rúta að sækja okkur kl. 7 um morguninn og lögðum við af stað á vit ævintýranna... eða svoleiðis. Ég gleymdi víst að taka það fram að þetta var svona smá snjór, ekkert stórmál, en þar sem Skotar eru bara ekkert vanir snjó þá kunna þeir ekki að keyra í snjó... og allsstaðar sat fólk fast útí vegkanti og við komumst mjög hægt áfram. Við komumst loksins að einhverri kaffiteríu einhverja kílómetra fyrir utan bæinn, og þaðan komumst við ekki lengra því við fengum við að vita að allir vegir voru LOKAÐIR:!: What!! Út af smá snjó! Svo að við snerum við.. frekar fúl... En guidinn okkar reyndi eins og hann gat að finna eitthvað fyrir okkur að gera í staðinn.. hringdi á allskonar söfn og ég veit ekki hvað, en það var allt lokað því fólk komst ekki til vinnu vegna SNJÓKOMU!  Við fengum þó fyrirlestur um Loch Ness skrímslið, sem menn halda að sé risastór styrja, og svo vorum við keyrð heim á hótelið aftur. Alveg dæmigert að eitthvað svona komi fyrir mig:$ :evil:

Til að bæta okkur þetta upp ákváðum við nokkrar, seinna í vikunni, að fara með lest í lítinn bæ sem heitir Balloch og þar var hægt að fara í klukkutíma siglingu á Loch Lommond.... sem og við gerðum. Kannski ekki alveg Loch Ness en engu að síður flott:haha:

En nú kemur það sem stendur hæst uppúr studieturnum og það var dagurinn sem við fórum til Edinborgar, eða réttara sagt ferðalagið þangað.. og heim.. sem var frekar súrrealískt!

Við mættum í rútuna okkar kl. 8.15 á mánudagsmorgninum, komum okkur þægilega fyrir og svo var ekið af stað. En eitthvað var bílstjórinn í vandræðum með að keyra rútuna, kom henni ekki í gír og alltaf heyrðust einhver skrítin hljóð.  Í Glasgow eru rosa brekkur, svona mini San Fransisco brekkur, og bílstjórinn var ekkert að höndla brekkurnar... reyndi að koma bílnum í gír en þá runnum við bara aftur til baka. Okkur leist nú ekkert á blikuna með þennan bílstjóra og í þessum skrjóð sem menn kölluðu rútu. Við vorum komin rétt fyrir utan bæinn þegar allt í einu gýs upp þessi hræðilega fýla8|! Svona megn brennslufýla! Við sem sátum aftast þar sem fýlan kom upp... ég var semsagt ein af þeim sem sat aftast... kölluðum til bílstjórans og sögðum honum að það væri eitthvað að. Þá fengum við þetta frábæra svar tilbaka: “Oh, it´s ok, it happens all the time!”. OMG... gerist þetta alltaf:!:? Væri þá ekki spurning um að fara að senda rútuna á verkstæði eða eitthvað! Maður spyr sig! Fýlan hvarf í smá stund en gaus svo aftur upp tíu sinnum meiri en áður og í þetta skiptið kom reykur með!!!8| Það kom hálfgert panik á liðið og fólk öskraði að það væri kviknað í bílnum! Þá loksins tók bílstjórinn við sér og stoppaði útí kanti. Við vorum alveg að kafna, og á tímabili hélt ég að þetta myndi verða mitt síðasta því fýlan og reykurinn voru að gera útaf við okkur.. og fólkið sem sat fremst í rútunni var ekkert að hleypa okkur, sem fundu mest fyrir þessu öllu saman, út fyrst.. heldur ruddust þau út og voru nú ekkert að flýta sér. Loksins komumst við þó heilu og höldnu útúr rútunni og biðum svo í hálftíma útí vegkanti á hraðbrautinni, eftir annarri rútu.

Loksins komumst við til Edinborgar, þar sem við m.a. heimsóttum Listaháskólann í Edinborg og skoðuðum kastalann í Edinborg. Borgin var mjög falleg, aðeins bjartari og stílhreinni en Glasgow, og mjög gaman að rölta þar um og skoða.

Kl. 8 um kvöldið vorum við svo sótt aftur, en fengum þá nýjan bílstjóra og nýja rútu (enda neituðu allir að fara með sama bílstjóranum heim aftur). Ég ætlaði mér nú aldeilis að sitja framarlega í rútunni í þetta skipti, bara svona til öryggis, en auðvitað voru öll sætin fremst upptekin. Við komum okkur þægilega fyrir aftast í rútunni, vorum búin að fá okkur nokkra öllara og vorum bara sonna í gúddí fíling. Við vorum hálfnuð á leiðinni heim... allir frekar afslappaðir og gjörsamlega ómeðvitaðir um það sem koma skyldi... þegar allt í einu og gjörsamlega óvænt heyrðust þessi svakalegu hljóð! Þakglugginn á rútunni fauk bara allt í einu af með þessum líka rosa látum!! Og hann var alveg lokaður og spenntur niður! Okkur brá ekki lítið og störðum svo bara allt í einu upp í stjörnuhimininn... ahahhaha.... Við ætluðum ekki að trúa þessu, hvað næst! Bílstjórinn stoppaði, kom aftur í og kíkti útum opið, hljóp út og reyndi að finna “gluggann” en kom svo tómhentur tilbaka. Við keyrðum s.s. með “gat” í þakinu;) hahah... Svona í algjöru djóki kallaði ég svo... alveg rosa fyndin... “Getiði ekki lokað glugganum!”... og þá byrjaði að RIGNA!! Greit! Og þarna sátum við restina af heimferðinni með regnhlífar og poka á hausnum og sungum “I´m singing in the rain...” hahaha.... ég gat bara ekki hætt að hlæja, þetta var svo fáránlegt allt saman. En við eigum sko alltaf eftir að muna eftir þessu:haha:

Studieturinn var s.s bara alveg ágætur svona á heildina litið. Það er þó ekki hægt að segja að þetta hafi verið mikið frí þar sem að við þurftum að vakna fyrir kl 7 næstum alla morgna! Ekki mikið sofið í þessu “fríi”;) En það var alveg nauðsynlegt að fara í svona ferð, þo ekki nema bara til að hrista hópinn aðeins samanJ

Þið fáið svo Londonferðina næstJ


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.03.2006 11:00:06 / mumin

Glasgow á morgun og brjálað að gera;)

Já það er komið að því... ég er að fara til Glasgow á Á MORGUN!!:haha: Vá hvað þetta er búið að vera fljótt að líða! Og ég þarf að vakna klukkan FIMM8| í fyrramálið því við leggjum svo snemma af stað.. uff;) Á mánudaginn sl. þurfti ég að hringja til Glasgow á safn sem við ætlum á og omg... hahahah ég var bara varla að skilja hvað fólk sagði!! Þannig að þetta verður fróðlegt og skemmtilegt;) Ég er ekki byrjuð að pakka niður og á eftir að gera helling í dag.. þar á meðal að fara á aðalfund Íslendingafélagsins í kvöld (en þá hætti ég í stjórn)... svo að ég ætla nú ekki að hafa þetta mikið lengra. En hafið það alveg rosalega gott dúllurnar þangað til næst:haha: Farin að pakka... 

» 7 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 19:16:56 / mumin

Kaupmannahöfn

Þá er helgin búin að og alvaran tekin aftur við. Fór semsagt til Kaupmannahafnar á fimmtudaginn til að hitta hana móður mína, en þar sem ég bý norður í ras... Danmerkur og hún í norður ras... Íslands þá ákváðum við að mætast á “miðri” leið.. semsagt í Köben. Við fengum gistingu hjá þeim Evu Karlottu og Auði og okkur leið sko ekki illa þar, takk fyrir okkur stelpur.

 

Ég var komin til Köben um miðjan dag, alveg að drepast úr kvefi og var eiginlega ekki að nenna miklu rölti, svo við við mamma settumst inná kaffihús á lestarstöðinni og fengum okkur öllara... ekki slæmt;)... og horfðum útum gluggann á alla furðufuglana sem gengu framhjá, og það er sko til nóg af þeim þarna;) Eva og Auður komu svo að hitta okkur og við röltum aðeins Strikið. Við tókum svo lestina heim til stelpnanna, en þær búa í Charlottenlund sem er eitt af úthverfum Kaupmannahafnar.... eiginlega bara alveg útí sveit. Þar slöppuðum við af og borðuðum saltkjöt og baunir.. namm! En hún mamma var svo yndisleg að koma með alveg fullt af góðgæti handa okkur að heiman:haha:

Við fórum svo í Field´s á föstudaginn, og eyddum þar öllum deginum.. enda er nóg að skoða þar og fullt af kaffihúsum og veitingastöðum! Við fórum svo út að borða á Hard Rock cafe um kvöldið, en því miður var ekkert svona show eins og síðast, þar sem að þjónarnir hoppa uppá barborð og byrja að dansa... en maturinn var góður. Stelpurnar fóru svo með okkur á lesbíubar, og það var upplevelse útaf fyrir sig;) Mjög skemmtilegt að stúdera konurnar þarna inni, því sumar litu bara alls ekki út fyrir að vera kvenmenn!  Þarna stútuðum við nokkrum jarðarberjamargarítum, sem er nýjasta æðið hjá mér enda voru þær rosa góðar, og héldum svo heim á leið. Á laugardaginn skoðuðum við okkur um þarna í Charlottenlund og fórum á lítið sætt kaffihús, Cafe Jorden Rundt, sem er við sjóinn, og “hugguðum” okkur þar. Við mamma ákváðum svo rétt að kíkja í bæinn og á lestarstöðinni sá ég eitthvað kunnuglegt andlit... Stóð þá ekki hann Tóti minn þarna með kærustunni sinni á leið í ferðalag!!:) Hann sagði mér að hann væri fluttur aftur til Danmerkur og ekki þykir mér það nú leiðinlegt;) Þú verður nú endilega að kíkja til mín einhverntímann í heimsókn Tóti..sleppur ekki í þetta skiptið;) En svo ég haldi nú sögunni áfram.. Ég keypti mér geðveikt flott stígvél sem mig er búið að langa í alveg rosalega lengi og til að halda uppá það þá fórum við mamma í írskan pub í bænum og fengum nokkra öllara og horfðum á fótboltann með hinum túrhestunum;) Við fengum okkur svo leigubíl heim og var það ein skemmtilegasta leigubílaferð sem við höfum upplifað. Leigubílstjórinn vissi bara allt um sögu Danmerkur og þegar við keyrðum framhjá einhverjum merkum stað þá sagði hann okkur sögu staðarins, svo þegar við vorum komnar heim þá vissum við bara alveg hellings meira um Danmörku en áður:haha: Ég held líka að leigubílstjóranum hafi þótt alveg rosa gaman hvað við sýndum þessu mikinn áhuga. Við elduðum síðan dýrindis nautasteik á laugardagskvöldið og renndum henni niður með nokkrum lítrum af rauðvíni...hahaha;) Þegar við vorum orðnar svona lika hressar þá skelltum við okkur á rónabarinn í “hverfinu”... hann var nefninlega aðeins lengra í burtu en við héldum. Við mamma vorum nú reyndar ekki alveg að fíla þennan bar svo að við fórum nú fljótlega heim... en það var sko ekki hlaupið að því. Við gátum ekki pantað leigubíl, náðum ekki inn, og kallinn á rónabarnum vildi ekki hringja á leigubíl fyrir okkur.. sagði bara að við gætum náð okkur í leigubíl fyrir utan staðinn. En þar voru náttúrulega engir leigubílar! Þegar við höfðum labbað smá spöl í snjókomunni og kuldanum, þá sáum við leigubíl! Við settumst inn og sögðum kallinum hvert við værum að fara, en hann rataði ekki og þar sem við rötuðum ekki heldur þá neitaði hann að keyra okkur!! Helv.. fíbblurinn!!!!!!!!!!!:evil: Þá tók við enn meiri ganga og við orðnar heldur pirraðar og komumst að því að við vorum bara ekkert á réttri leið. Ég sá svo konu sem var að skafa af bílnum sínum, hljóp til hennar og spurði hana hvert við ættum að fara. Hún sagði að við værum frekar langt í burtu frá götunni okkar og sagði okkur að hoppa uppí bíl, hún væri hvort eð er að fara þá leið!!!:D Þvílíkur engill þessi kona! Ég er sko handviss um það að hún hafi hreinlega bjargað okkur því ef hún hefði ekki keyrt okkur heim, hún keyrði okkur sko upp að dyrum, að þá hefðum við örugglega orðið úti einhversstaðar! Við eigum henni sumsé líf okkar að þakka:haha: Gærdagurinn fór svo í þynnku og eintóma leti.. frekar ljúft (þ.e.a.s. letin ekki þynnkan) enda búið að vera nóg að gera um helgina. Við mamma vorum svo samferða á lestarstöðina í morgun. Þar fengum við okkur brunch.. og við erum að tala um að annað eins magn af morgunmat hef ég nú bara sjaldan séð á einum disk, við gátum ekki einu sinni borðað helminginn!;) En hann var alveg rosa góður. Svo kvaddi ég hana móður mína, það var ekki gaman:cry: Sé hana fyrst aftur i júní!!! *Grát*  C´est la vie. En ég rétt náði lestinni minni og  hélt svo ein á leið heim til Álaborgar. En þetta var alveg frábær ferð og svo gott að hitta hana mömmu. Takk fyrir að koma i "heimsókn" til mín mamma mín;) Svo koma bráðum myndir frá ferðinni:)



 


» 7 hafa sagt sína skoðun

01.03.2006 15:02:58 / mumin

Klukk..

Enn eitt klukkið... Rannveig klukkaði mig og þar sem ég hef ekkert annað að gera þá ákvað ég að dunda mér við þetta;)

4 Störf sem ég hef unnið um ævina:
1. Dvalarheimilið Hlíð

2. Býflugan og blómið (blómabúð)
3. ESSO Leiruvegi

4. Benzons (veitingastaður á Jomfru Ane Gade)


4 Bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:
1. The fifth element

2. Independence Day
3. Love actually
4. Sense and sensebility

4 Staðir sem ég hef búið á:
1. Brekkan á Akureyri
2. Þorpið á Akureyri

3. Innbærinn á Akureyri

4. Álaborg, Danmörk

4 Sjónvarpsþættir sem mér líkar:
1. Friends
2. Desperate Housewifes
3.
Gilmore girls

4. Prison break

4 Síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:
1. DIFN (íslendingafélagið í Áló)
2. mbl.is

3. Hotmailið mitt
4. síðan mín

 

4 Staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
1.
Krít

2. Prag

3. Ísland
4. Svíþjóð

4 Matarkyns sem ég held upp á:
1.
Kjúklingur pabba/kjúklingaréttur mömmu
2. Íslenskt lambalæri með tilheyrandi meðlæti

3. Greifapitsa
4. American style burger


4 Staðir sem ég vildi heldur vera á núna:
1. Á hlýrri hvítri strönd við grænbláan sjó
2. Heima á Akureyri með fjölskyldu og vinum
3. Í New York

4. Í Köben með mömmu (er að fara á morgun:) )

Og nú ætla ég að klukka Kötu, Guðnýju, Steinunni og Jónu.. múahaha:klikk: ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.02.2006 18:42:02 / mumin

*Hóst* :,(

Ég er að kafna úr kvefi:cry: Búin að liggja í rúminu/sófanum í allan dag og reikna með að morgundagurinn fari í það líka:( Það er sko eins gott að ég verði búin að ná þessu úr mér á fimmtudaginn því þá fer ég til Köben að hitta mömmu!!! :haha: Hlakka svo til að hitta hana, get ekki beðið! Ég heyrði í henni Guðnýju minni í gærkvöldi, ekkert smá gott að heyra í henni. Allt að gerast hjá henni og hún er voða happý:) Það er ennþá svo skrítið að hafa hana ekki hérna í næsta húsi, er nú eiginlega að vona að fráhvarfseinkennin hverfi svona bráðlega;) Svo er bara rétt rúm vika í Glasgow og rétt rúmar 2 vikur í London.. allt að gerast :haha: Jæja, ætla að halda áfram að reyna að ná þessari flensu úr mér... hóst..

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6